27.12.2006 03:10:57 / Salka

Gleðileg Jól!!!

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár. (",)


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 18:03:52 / Salka

Já, stundum getur verið gott að vera seinn!!!!

Í gær var hringt í mig frá Gallup og ég spurð hvort að ég vildi taka þátt í umræðufundi hjá þeim og ég hugsaði með mér allan tíman á meðan að konan var að tala í síman að ég nennti sko ekki að taka þátt í einhverju soleiðis....angað til að konan sagði að fyrir það að koma fengi maður 5000kr gjafabréf í smáralindinni. Þá var ég sko fljót að skipta um skoðun. Svo áðan ætlaði ég að fara niður í Gallup á þennan umræðufund en var óvart 5 mín of sein þar sem að húsið er falið einhverstaðar bakvið Borgartún (en er samt borgartún) og fundurinn var nú þegar hafin, svo að ég misti af honum. En maðurinn sem tók á móti mér ákvað að kauna mér fyrir ómakið að koma mér þanagað og gaf mér samt gjafabréfið. Svo að ég fékk semsagt 5000kr í smáralind fyrir það eitt að labba í 10 mín.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 16:47:30 / Salka

Myndir Myndir !!!!

Var að setja inn myndir bæði frá því að Valgerður kom að heimsæka mig til New York (Valgerður í heimsókn) og frá Grunfyrskumdögum á Grundafyrði (Grundó)

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 13:32:55 / Salka

Er komi heim!!!

Vá maður kemur heim og gleimir því bara alveg að maður er með blog...En það er sko margt og mikið búið að gerast hjá mér síðan að ég kom heim. Ég fór á Grundafjörð þar síðustu helgi á Grundfyrska daga og að hitta Önnu Dís . Svo síðustu helgi fór ég til Eyja á Þjóðhátíð með Dóru og vá hvað við skemmtum okkur vel...;) enda sit ég núna hér með nokkurnvegin enga rödd og hita :( En það var samt vel þess virði. Jæja ætla að fara að leggast upp í rúm og reina að láta mér batna... ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 04:16:24 / Salka

Sprenguhótun í Park Slope!!!

Í gær var allt morandi í löggum og fullt af götum lokaðar hér í Park Slope vegna sprenguhótunar...:o Það var svoldið erfitt að komast á milli sataða og fólk stóð út á götum í panik kasti að spurja hvað væri að gerast. Svo í gær fór ég líka í svona ekkta amerískan skemmtigarð eins og maður sér í bíómyndunum. Þetta var stærsti hreifanlegi skemmtigarður í heimi og var hann opin til kl. 2 um nóttina í gær. Þannig að ég og Kristín hlupum á milli tækja fram að lokun, fórum meira að sega í barna tækin. Svo í dag er náttlega 4 júlí...þjóðhátíðardagur bandaríkjamanna. Og ég fór með Halla og Ástu í boð í Coneticut, og vá það var ekkert smá flott þar. Svo endaði ég kvöldið hérna heima upp á þaki að horfa á flugveldasýninguna með Kristínu og Charlotte, og við fengum meira svona áramóta fílin frekar en þjóðhátíðarfíling ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 02:24:57 / Salka

;)

Vá hvað ég er ódugleg við að skrifa...gott að ég er ekki rithöfundur ;) Annars er rosa lítið búið að gerast síðan að Valgerður fór nema auðvita að ég átti afmæli. Stelpurnar komu yfir í mat á afmælinu mínu og svo fórum við og skelltum okkur auðvita á djammið.

Á morgun er svo planið að fara út að borða í  Viliamsburg hér í Brooklyn og skella okkur svo pöparölt þar. Svo á laugardaginn er Inga ein heima og ætlum við stelpurnar að hafa náttfataparty.

Jæja ég nenni ekki að skriafa meyra í bili...kannski að ég segi ykkur betur frá helginni eftir helgi ;)  hehe

26 dagar í það að ég kem heim fyrir þá sem eru ekki byrjaðir að telja niður enþá ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 01:58:32 / Salka

Valgerður farin :(

Jæja þá er Valgerður farin og það er búið að vera alveg æðislegt að hafa hana hjá mér síðustu viku...Hún hefur nú samt ekkert verið neitt rosalega heppin með veður þar sem að það er búið að rigna hálfan tíman sem hún er búin að vera hérna, og voru þeir dagar bara nýttir í verslunarferðir og þið vitið eflaust hvaða afleiðingar það hefur í för með sér... ;)

En það var nú ekki bara verslað. Við  löbbuðum líka yfir Brooklynbridge og þaðan niður að pier 17 þar sem að við fórum svo í skoðaunarferð á water taxanum, svo að Valgerður fékk tækifæri til að skoða frelsisstyttuna. Svo fórum við í Central park og upp í Empier State bygginguna. Við fórum líka í svona tv and movie túr þar sem að við fórum um allan bæinn með leiðsögumanni sem sýndi okkur hvar myndirnar og þættirnir væru teknir upp......................................

Ég skrifa meira á morgun en verð bara að fara að sofa núna þar sem að ég get varla haldið augunum mínum opnum lengur ;)  hehehe


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 14:52:47 / Salka

Rigninginn er blaut!!!

Í gær fórum við stelpurnar... ég, Valgerður, Inga og Sigga í Tivolí í New Jersy. Það var ekkert smá gaman enda Tívolíið byggt upp á aðalega rússibönum. Við vorum svona eins og litli krakkar hlaupandi á milli tækjanna. Svo sáum við Valgerður svona rólur sem snúast, svona eins og að við elskuðum að fara í, í Tívolíinu í Finnlandi og urðum að skella okkur í þær bara svona til að minnast gömlu daganna. Upp úr 6 þegar að við vorum búnar að vera hlaupandi út um allan garðin kom ekki þá þessi úrhellisrigning og ég held (veit) að það hafi ekki verið einn einasti þurri bletur eftir á okkur stelpunu þegar við loksins komumst upp í rútu klukkan 8:30...og búnar að standa í rignigunni allan þennan tíma. Verð að segja að ég hef aldrei upplifað eins óðægilega rútuferð á æfi minni.


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 17:21:50 / Salka

sól og sumar 8)

Sit hér úti í garði í sólbaði með Ingu og Kristínu í 28 stiga hita ;) Enda markmið sumarsins að verða brún og fín ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 19:54:11 / Salka

Ekki ljóshærð lengur!!!

Er lengi búin að pæla í því að lita á mér hárið brúnt... og lét svo verða af því í gær. Þannig að núna er ég víst orðin (ljóska í dulargerfi). ;)

Í dag er Julia að koma til okkar, til að vera þar til að það fynnst vonandi ný fjölskilda handa henni þars sem að greyið var svo óheppin að þurfa að fara í re-mach (skipta um fjölskildu) þar sem að fjölskildan hennar er eithvað skrítin. :(

En af mér er allt gott að frétta, er að fara að singa á tónleikum í kvöld og svo aftur á sunnudagin (bæði kór tónleikar)... og svo á meðan að Valgerður er hérna verða einsöngstónleikar hjá mér... það virðist alltaf hittast á að það sé einhver í heimsókn hjá mér þegar ég er að singa á tónleikum... ;)

Jæja þarf að fara að hafa mig til ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 03:47:01 / Salka

MYNDIR!!!

Var að setja inn myndir frá helginni 28-30 apríl... ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 23:23:18 / Salka

Víst komin tími til að blogga!!!

Er nýlega búin að komast að því hvað ég á lítið eftir hérna...ekki nema 3 mánuði... og þar sem að svona lítill tími er eftir er hann nýttur alveg rosalega vel. Svo að við stelpurnar ákváðum að byrja helgardjamið snemma, eða þara að sega á fimmtudeginum. En þá fórum við semagt á smá pöpparölt rétt hjá Time Square og okkur var boðið upp í drykk fyrir það að vera íslendingar... semsagt fyrir þá sem vita það ekki þá er rosa flott að vera íslendingur. ;) En svo á föstudaginn förum við Inga, Jes og Kristín ásamt einhverri stelpu sem Kristín var að kynnast inn í Cheals hverfið að skemmta okkur. En þar sáum við Inga fólk út á götu að auglýsa Reyka vodka og heimtuðum náttlega að fá mynd af okkur með þeim. Og svo í gær var farið á webster hall og dansað, dansað og dansað.

Við tókum alveg helling af myndum en þær eru allar í haldi hjá henni Ingu...svo að um leið og ég fæ þær hjá henni set ég þær inn...

Jæja ekki meira í bili héðan úr góðs veðrinu í new york 8);)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 00:53:37 / Salka

Elín í heimsón!!!

Núna er Elín búin að vera hérna í viku og erum við búnar að gera rosa margt skemmtileg... þar á meðal versla. :D Maður fær aldrey nóg af því. Svo í fyrradag fórum við á Lion King og vá þetta er ekkert smá flott sýning. ;) Svo eftir sýninguna ákváðum við að rölta aðeins um Time Square í kvöldblíðunni. En vorum svo rosalega heppnar að labba framhjá Hard Rock cafe, en þar var verið að sýna einhvern nýjan bíl... en hvað um það. Það var allavega fult af upptökuvélum þarna og fullt af fólki með myndavélarnar á lofti að bíða eftir einhverjum... Og svo kom þessi gaur á ekkert smá flottum bíl og allir fóru að æpa... og þá var þetta semsasgt einhver frægur, en verst að ég hef ekki hugmynd um það hver það var því að ég er ekkert svo góð þegar kemur að því að þekka leikara. En nú get ég allavega sagt að ég hafi séð einhvern frægan þótt svo að ég hafi ekki hugmynd um það hver það var ;) he he

Var að setja inn myndir undir Apríl ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 04:20:27 / Salka

Frábær þýðing!!!

Ég og Elín sitjum hérna í hlaturskasti yfir þessari æðislegu þýðingu á samsæriskenningum um ferðina til tunglsins árið 1969......

http://www.tranexp.com:2000/InterTran?type=url&topframe=yes&url=http%3A%2F%2Fwww.apfn.org%2Fapfn%2Fmoon.htm&from=eng&to=ice

Endilega kíkið á þetta...!!!

;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 01:15:31 / Salka

Washington!!!

Um helgina fórum við Inga til Washington og skemmtum okkur rosa vel...Föstudagiurinn byrjaði þannig að ég og Inga vorum alveg á síðustu stundu með að hafa okkur til og fengum svo að kynnast new york stressi...sem er semsagt næ ég á réttum tíma eða ekki (fer eftir subway). En þar sem að við vorum svo heppnar að ná rútunni vorum við komnar klukkan 18:00 til Washington eins og áætlað var...Þar fengum við smá tíma til að koma okkur fyrir á hótelherberginu sem var mun betra en ég gat nokkurtíman búist við miðað við það sem við borguðum fyrir ferðina...En þegar búið var að koma sér fyrir og slappa aðeins af var farið með okkur í smá ökuferð um bæinn svo að við fengum tækifæri til að sjá borgina að kvölditil. Daginn eftir var svo vaknað snemma og öllum dröslað upp í rútur þar sem að leiðsögumennirnir  byðu okkar til að sína okkur og segja okkur soldið frá öllum merkilegu stöðum borgarinnar. Ferðinni var lokið um 14:00 og fengum við þá frítíma það sem eftir var dagsins... Frítíma okkar notuðum við til að hitta vinkonu mömmu hennar Ingu sem býr þarna rétt hjá Washington...og keyrði hún okkur aðeins um, og þar á meðal t.d. hverfið þar sem allir millarnir búa og vá það er frekar óraunverulegt að sjá þessi "hótel" þar sem að kannski 2 manneskur búa í...En eftir ökutúrinn bauð hún okkur út að borða á þessum frábæra mexiklskum veitingarstað þar sem að okkur tókst að borða yfir okkur (takk fyrir mig). Eftir þennan yndislega mat fórum við svo upp á hótelherbergi og fengum okkur rauðvínsglas og spjölluðum við herbergisfélaga okkar. Á sunnudeginum var svo farið í Arlington National Cemetery til að skoða nokkra fræga legsteina.. og til að sjá skiptin á vörðunum, sem var ekkert smá fyndin sjón...svo að ef einhver getur sagt mér hvernig hægt er að setja myndbönd inn á netið þá tók ég upp skiptin...Ferðin endaði svo heima í new york klukkan 18:00

Myndir úr ferðinni eru undir Washington ;) Ekki mín myndahelgi...hræðilegar myndir af mér!!!

Vá þetta er 3 skiptið sem ég reyni að skrifa þessa færslu... tekst einhvernvegin alltaf að eyða henni.... :(


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4